25. jan. 2007

Nýr lúkkur

Jú - eitthvað var ég búinn að lofa nýjum lúkki. Síðustu kvöld, á milli Sópranósáhorfs hef ég verið að dudda (í boði Gommit) við þennan nýja lúkk og nú er hann kominn. Eitt og annað þarf ég að laga en þetta er bara huggulegt finnst mér. Ég vek athygli á leitarmöguleikanum hér uppi til hægri. Í boði Google Blog Search. Ef þið elskið þennan lúkk getið þið skrifað mér um það skilaboð. Ef þið hatið þennan nýja lúkk megið þig skrifa um það skilaboð.

Lestur á bloggnum hefur aukist á nýju ári, sennilega í kjölfar aukinnar bloggtíðni. Nú er að sjá hvort nýr lúkkur bloggsins skili enn meiri lestir/heimsóknum.

But: Back to work

ööööö - annars má lesa nýja bloggfærslu Jóku á bloggnum hennar jokkos.blogspot.com

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

flott

Króinn sagði...

Af hverju eru allir allt í einu farnir að setja öll tökuorð í karlkyn: lúkkur og bloggur? Hljómar eins og færeyska.

Nafnlaus sagði...

Voða fínt hérna, búið að taka til og svona.

Nafnlaus sagði...

Ég ákvað að prófa leitina því ég þarf einmitt að fá mér svoleiðis bráðum og sló inn strætó sem finnst ekki. Dularfullt þar sem það er fyrsta orðið sem mér datt í hug einmitt vegna þess að það kemur svo oft fyrir hjá þér.

Nafnlaus sagði...

Mér finnst útlitið aðeins of austantjaldskaldastríðslegt fyrir minn smekk (e.g.blokkin) og svo sakna ég þinnar pírðu ásjónu sem birtist manni svo skemmtilega í gamla lúkkinu.
En hvað veit ég.