19. mar. 2010

Föstudagsgetraun 2

Eini lesandi síðunnar er búinn að giska. Hann gask á A Fistful of Dollars, með trega. Það er enda ekki rétt.

Spurt er um kvikmynd

1. vísbending: Myndin þykir marka endurkomu tiltekins forms kvikmynda sem hafði verið vinsælt nokkrum áratugum áður.

2. vísbending: Myndin er fyrsta leikstjórnarverk leikstjórans. Almennt höfðu menn ekki mikla trú á verkefninu í byrjun. Myndin hlaut þó góðar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Xenogenesis í leikstjórn James Cameron. Endurkoma geimmynda.
- o.veigar