12. mar. 2010

Endurlífgun bloggsins (einu sinni enn)

Kæru lesendur (sem sagt Siggi og Berglind)


Enn einu sinni held ég á vit endurlífgunartilrauna bloggsins. Þeir sem fylgst hafa með þessum bloggi (já, beygist eins og lókur) vita að slík umsvif eru ekki endilega merki um tíðari færslur eða vitsmunalegri umræðu hér. Mestmegnis bara fikt og dund af minni hálfu við að skoða nýjar víddir netsins.

En sjáum til.

Annars tók ég upp á því í gærkvöldi að búa mér til sinnep. Það er bæði einfalt og flókið. Sérlega einföld uppskrift en sérlega flókið að ná hlutföllunum rétt. Enn flóknara verður dæmið þar sem sinnep er þess eðlis að það er eiginlega ekki hægt að smakka sig áfram. Eftir þriðja smakk er maður eiginlega búinn að missa allt bragðskyn. Fyrir nú utan að sinnep nær ekki rétta bragðinu fyrr en töluvert eftir blöndun, það þarf að fá að setjast aðeins og jafna sig.

En svona er uppskriftin mín nokkurnvegin:

Sinnepsduft (enskt)
Kalt vatn (sænskt)
Eplaedik (sænskt)
Viskí (japanskt, sjá fyrri færslu)
Salt (franskt)
Basillika (uppruni óþekktur)
Chili pipar (þýskur)
Hunang (danskt)

Hlutföllin eru meira eða minna einn hluti vökva á móti tveimur af dufti. Svo er bara að passa að hafa ekki of mikið af ediki og viskíi á kostnað vatns og að edikið og viskíið vegi ekki út hvort annað. Hunang svo bara eftir því hversu sætt sinnepið á að vera. Eiginlega ætti að vera smá hvítvín í þessu líka, en ég átti ekkert hvítvín í gærkvöldi útaf helvítis sýstembólaginu.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skemmtilegt ad bloggid se farid ad lifna vid, fylgist med ur fjarlaegd - mvb

Króinn sagði...

Annar tveggja lesena kvittar fyrir sig. Þú ert þá kannski með svipaða tölfræði og ég er með á læsta blogginu mínu, þ.e. 0-3 sirka á dag.

Nafnlaus sagði...

Til hvers að búa til sinnep?
Hefurðu ekki alveg nóg að gera, það fer kannski að koma tími á að eignast börn ;)