24. mar. 2007

Tók fram sumarjakkann, klæddi mig í hann og fór út. Þar voru allir. Slottsskogen uppfullur af fólki sem sat í grasinu, gekk um eða bara brosti framan í sólina. Fyrsti opinberi vordagurinn. Það á vel við enda skipt yfir í sumartíma eftir miðnætti.

Sextugsafmæli í kvöld - húrra fyrir því.
Þriggja ára afmæli á morgun.

2 ummæli:

Króinn sagði...

Er sumarjakkinn beislitaður?

Fjalsi sagði...

rauður - eiginlega eins og norski fáninn