12. mar. 2007

Nálgast vorið?

Þeir sögðu mér það í óspurðum fréttum að úti væri 9 gráðu hiti. Enda heyri ég fuglana tísta og gái ég snöggt út um gluggann sé ég sólina skína yfir Slottsskogen. Kannski er vorið bara rétt ókomið. Kannski.

Ég drekk amk kaffið mitt úr bollanum mínum. Kaffið malaði ég áðan í kaffikvörninni sem ég festi á eldhúsvegginn í gær.

Maður finnur sér nú sitthvað til dundurs hér í henni Gautaborg.

1 ummæli:

Króinn sagði...

Sigurdarmál boda: Vorid er komid til Gautaborgar og Kaupmannahafnar. Húrra (x4)!!!