19. mar. 2007

Og svo fór vorið

Það sneri við og fór aftur heim. Hvar sem vorið á nú heima, fyrir sunnan a.m.k. Hér snjóar! Það verður því ekki farið út að jogga í dag. Sko - ekki byrjaður á jogg-lífstílnum og strax farinn að finna mér afsakanir fyrir að fara ekki út. Annars átti þetta að vera sumargjörningur hjá mér og það er ekki beinlínis sumar núna... ekki í dag.

Annars var farið í bíó í gær og séð the Departed. Það er góð mynd. Þar notar Scorsese lagið Gimme Shelter enn einu sinni. Þetta er í þriðja sinn sem hann notar það lag, svo ég viti til a.m.k.

2 ummæli:

Finnur sagði...

Helduru að ég hafi ekki bara líka horft á Departed. Hún var hressandi já

Nafnlaus sagði...

Vorið á hvergi heima, það kemur og fer