16. apr. 2008

Heimþrá?

Í gær og í dag hefur legið yfir mér einhvers konar heimþrá. Hún er hins vegar undarleg að því leyti að ég hef skyndilega löngun til að gera eitthvað sem ég hef hingað til hefur ekki skipað neinn sérstakann sess í daglegu lífi mínu í Reykjavík. Til dæmis:

Borða borgara á Grillhúsinu Tryggvagötu
Kíkja í sunnudagsbíó í Regnbogann
Billabjór á Hverfisgötunni
Skella mér í Listasafn Íslands
Labba í gegnum Ráðhús Reykjavíkur
Kolaportið


Undarlegt


Annars fjárfesti ég í flugfari til Íslands 18. maí. Verð þar til 8. júní. Seisei já

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jess!! Það eru góðar fréttir!

gulli sagði...

þá fáum við okkur borgara og kíkjum í billabjór og bíó!

Fjalsi sagði...

líst mér á - byrjum þarna í tryggvagötunni, röltum svo í billabjór og svo áfram upp hverfisgötuna í bíó

lovlí 101