26. apr. 2007

Úr þjóðkirkjunni

Ég hef ætlað að gera það lengi en einhvernveginn alltaf gleymt því. En nú loksins prentaði ég út eyðublaðið, merkti við reitinn „Skráning utan trúfélaga“ og ætla að senda það á eftir.

Það er undarlegt að stofnun sem telur sér trú um að hún boði náungakærleik og mannvirðingu sýni stórum hópi þjóðarinnar jafnmikla mannfyrirlitningu.

1 ummæli:

Króinn sagði...

Ég dreif einmitt í þessu sama fyrir svona einu og hálfu ári síðan eftir að biskupinn bullaði eitthvað um að samkynhneigð samræmdist ekki fjölskyldugildum eða eitthvað svoleiðis. Var líka búinn að vera að plana úrsögnina í mörg ár en biskupinn varð að lokum hvatinn.