13. apr. 2007

Ég skellti mér í páskafrí og á meðan varð bloggergræjan sænsk.

Jamm - við Jóhanna örkuðum í páskafrí til Amsterdam. Þar hafði ég ekki verið síðan 13:30 þann 1. september 2005. Það var yndislegt að koma aftur til borgarinnar minnar litlu, ofan á fiets í sólinni framhjá grachten og skökkum kubbahúsum með stansi á bruin cafés og snæða þar bitterballen og sötra biertjes. Já, Amsterdam er í senn prettig, gezellig, geweldig og leuk!

1 ummæli:

Finnur sagði...

Mmmm, djöfull væri ég til í smá bitterballen með sinnepi núna...