6. des. 2005

Ekkert gengur með getraunina. Sjötta vísbending ætti að gefa svarið:

1. vísbending: Spurt er um kvikmynd. Myndin er endurgerð eldri myndar frá 1969.
2. vísbending: Sögusvið myndarinnar er Kúba.
3. vísbending: Kvikmyndin er bandarísk. Fyrri myndin er það ekki.
4. vísbending: Í myndinni eru djarfar kynlífssenur og vilja sumir flokka hana sem ljósbláa kvikmynd.
5. vísbending: Í aðalhlutverkum eru tvær þekktar Hollywoodstjörnur. Skírnarnöfn þeirra byrja bæði á stafnum A.

6. vísbending: Fyrri myndin er frönsk og var í leikstjórn François Truffaut.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Getraunir eru fín brjóstbirta í þessu yfirþyrmandi skammdegi. Er ekki svarið annars komið...? (svar Hulla frá í gær)