8. feb. 2011

Að fæða geit

Um daginn vaknaði ég eftir furðulegustu draumfarir. Mig dreymdi að ég væri staddur á hanboltaleik, í kvennaboltanum, og ein af leikkonunum var há svört kona með sítt hátt og langar lakkaðar neglur. Svo skyndilega hné konan niður og byrjar að fæða. En hún fæðir ekki barn heldur geit, og varla neinn kiðling heldur fullvaxna geit. Ég var á þessum handboltaleik með nokkrum vinum og verð alveg forviða. Eftir leikinn liggur leiðinn svo í búðaráp, en ég er mjög upptekinn af atburðinum og vil ræða þetta ítarlega og spyr vinkonu mína, sem hefur reyndar meiri áhuga að versla, í sífellu hvernig það megi vera að manneskja og geit geti eðlað sig. Það nái engri átt og undir hvaða kringumstæðum verður slíkt. Ég fer að leiða hugann að því hvort konan hafi leikið í dýraklámi eða að hafur hafi nauðgað henni. Því mér dettur ekki í hug að kona hafi mök við hafur af fúsum og frjálsum vilja eða af frygð.

Nú er spurninginn: Hvernig má ráða í þetta?

1 ummæli:

Birna Helena sagði...

Hugsanlega er antikristur að fara að fæðast og það er íþróttakona sem elur hann.
Geitur eru í bandalagi við djöfulinn það vita allir.