22. feb. 2007

Ég verð auðmaður innan skamms


Þetta er stórkostlegt! Auður minn vegna GoogleAds er nú orðinn 2,39 dollarar. Það gera um 160 krónur íslenskar, sem eru mér reyndar lítils virði þessa dagana. Tæpar 17 krónur sænskar eru þetta. Ég gæti t.d. keypt fyrir það Samuel Adams Double Bock í Systembolaget...

Ég þakka gestum músíksbloggsins pent fyrir. Hvur veit... kanski ég eigi nóg fyrir sex svona kvikindum um helgina?

1 ummæli:

Finnur sagði...

Ég er kominn í $8,5. Ef við sláum saman þá er partý