26. jan. 2006

S-einn stóð undir nafni í dag eins og flesta aðra daga. Mér finnst ágætt að ferðast með strætó. Næ yfirleitt að lesa mestmegnis Fréttablaðið á leiðinni. En mér finnst ekki gaman að bíða eftir strætó. Mér finnst ekki gaman að bíða yfir höfuð. Þoli það ekki.

Nei, myndin hér að neðan er hvorki úr For a Few Dollars More né The Good, the Bad and the Ugly hans Leones míns.

4 ummæli:

Þórdís Gísladóttir sagði...

Er þetta úr sígarettuauglýsingu?

Þórdís Gísladóttir sagði...

Mig minnir reyndar að ein myndin hafi heitað Fistful of dollars. Kannski er þetta hún. Ekki það að ég horfi á bíómyndir að ráði svona ef mig skyldi kalla.

Nafnlaus sagði...

skrýtið ... er þetta ekki sama ponsjóið og hann er í í for a few dollars more?

Fjalsi sagði...

Ég held að hann hafi nú klæðst þessu ponsjói í öllum systramyndunum þremur. Hinsvegar er þetta skot úr A Fistful of Dollars.