(#twitter) Ekki hætta dularfullar póstsendingar á netfangið mitt. Nú um daginn, 8. mars barst mér eftirfarandi:
Sæll Hjörtur
Við erum lítill hópur sem hyggst byggja og reka lítið einkasjúkrahús hér í Reykjavík. Undirbúningsvinnan er komin á fulla ferð.
XXXX gaf mér netfangið þitt, við töluðum saman um helgina.
Eingöngu verður um liðskiptaaðgerðir (hné- og mjaðmir) að ræða.
Við erum að líta í kringum okkur eftir góðum bæklunarlæknum sem gætu hugsað sér að flytja heim og taka þátt í framtíðaruppbyggingunni með okkur.
Hafi þetta vakið áhuga þinn vinsamlega sendu mér e-mail með símanúmerinu þínu og hvenær hentar að ég hringi í þig. Ég hef svo samband við þig í framhaldinu.
Leiðinlegt að missa af þessu tækifæri. En ég treysti mér bara ekki í liðskiptiaðgerðir eins og er.
Svo í dag kom þetta frá einhverri stúlku:
Sæll Hjörtur,
Ég kom með nótur fyrir tveimur takkaskópörum fyrir svona 3-4 vikum og ég hef ekki ennþá fengið þetta greitt inná reikninginn minn?
Tekur þetta langan tíma?
Ég veit ekki hvaða takkaskó þessi stúlka er að tala um.
1 ummæli:
Þetta með liðskiptaaðgerðirnar hljómar mun betur borgað en þessi þýðingarvinna alltaf hreint.
Já, og borgaðu svo fyrir takkaskóna, drengur!
Skrifa ummæli