29. jan. 2009

Merkilegur dómur

Í dag féll dómur í Hæstarétti þar sem Gaukur Úlfarsson er sýknaður af meiðyrðakæru Ómars R. Valdimarssonar. Gaukur mátti sum sé kalla Ómar rasista.

Grein áfrýjanda, sem málið varðar, var birt í miðli, sem var opinn án endurgjalds sérhverjum þeim, sem kaus að kynna sér hana. Fallast verður á með áfrýjanda að þessi skrif megi skoða sem lið í almennri umræðu um stjórnmál í aðdraganda alþingiskosninganna 2007. Stefndi tók þátt í þeirri umræðu á sama vettvangi, meðal annars með þeim greinum, sem birtust á vefsvæði hans og áður var lýst. Hann hefur ekki andmælt fyrrgreindum staðhæfingum áfrýjanda um þá andstæðu tauma, sem þeir drógu hvor fyrir sitt leyti í þessari umræðu


Með þessu sýnist mér fordæmi gefið fyrir því að uppnefna aðra bloggara, svo fremi að það séu hluti af umræðunni hverju sinni.

Þannig mætti ég kalla Björn Bjarnason fasistasvín, Ögmund Jónasson kommúnístadrullusokk og Sóleyju Tómasdóttur femínistakellíngu.

Eller hur?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég held að það sé mikið af fólki sem nefnir þau einmitt svo, fyrst og fremst á moggablogginu reyndar. Og fólk heldur því vænti ég áfram ef því er einboðið að gera svo, þótt ekki risti það sérlega djúpt.