18. maí 2006

Íbúð í Gautaborg til leigu

Til leigu er tveggja herbergja íbúð í Gautaborg í sumar (frá 1. júní til 15. júlí). Íbúðin er við Slottsskogsgatan, í fallegu og rólegu hverfi á mjög góðum stað í bænum. Íbúðin er björt og rúmgóð og leigan er á bilinu 30-40 kr. (eftir gengi íslensku krónunnar).

Þannig að ef lesendur þessarar síðu eru á leið til Gautaborgar á umræddu tímabili er um að gera að hafa samband.



Það voru sálfræðingarnir sem komu með svarið/svörin þetta sinnið. Conor Oberst er maðurinn á bak við hljómsveitina Bright Eyes. Ég hélt að svarið myndi aldrei koma. Og við ykkur sem ekki þekkið til Bright Eyes segi ég: Hlustið!


svo á mamma afmæli í dag. hún fær frekari hamingjuóskir

2 ummæli:

Unknown sagði...

Til hamingju með mömmuna þína. Bið að heilsa henni. Hitti annars pabba þinn í dag. Við vorum saman á námskeiði í vinnunni okkar. Reykjavíkurborg - einn vinnustaður, jú sí.

Króinn sagði...

Ansi er þetta nú lág mánaðarleiga!