7. ágú. 2007

Svei mér sveiattinn

Þegar þetta er ritað eru 18 dagar og fjórar klst. í Krít. Ég man þegar það voru 32 dagar og það er ekki langt síðan. Samt sem áður 14 dagar. Það er sum sé ekki langt í Krítarferðina miklu. En ég fór nú samt bara til Köben um síðustu helgi. Þessa sem var að ljúka rétt í þessu.

Ó hve það var gaman...

Annars er sumarið loks komið hér í Skandinavíu með öllu tilheyrandi. Ég ætla með rauðvín og teppi, bók og bjór út á stefnumót núna eftir vinnu við sæta sænska stúlku í Slottsskogen.


Ó já

1 ummæli:

gulli sagði...

þú hlýtur þá að vera nýbúinn að skrifa færsluna. það eru nefnilega 18 dagar, fjórar klst. og 20 mínútur í ferðina þína núna.