4. sep. 2006

Af fíflum

Einhvern tíma voru hestaþjófar réttdræpir? Eða var það ekki. Það sama finnst mér eigi að gilda um hjólreiðaþjófa. Ég er almennt á móti dauðarefsingum en gera má undantekningu í þessu tilviki. Endilega drepið þann sem stal hjólinu mínu síðasta laugardagskvöld. Eða var það sunnudagsmorgun? Á sjálfan afmælisdaginn?

Dauði og djöfull...


Svo finnst mér líka að heimila ætti pyndingar á fólki sem rukkar 100.000 kr. fyrir 50 fermetra kjallaraholu í þingholtunum.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hjólreiðaþjófa?

Fjalsi sagði...

jamm sem stela hjólreiðum

eins og útreiðaþjófa og göngutúraglæpamenn