30. jún. 2006

Föstudagsgetraun

Hvað varð um fuglaflensuna?


Ný borgarstjórn vill útrýma máfum og byggja úthverfi og halda árfram dekrinu við einkabílinn.
Ný ríkisstjórn vill breyta skatta- og lánakerfinu svo að nýtist minnst þeim sem mest þurfa.
Leiguverð fyrir 50 fermetra kjallaraholu er 100.000 krónur í miðbænum.
Kaupverð á sömu íbúð er 15 milljónir.

Mín spá: Ég verð fluttur til útlanda fyrir áramót...


Föstudagsgetraun:

Spurt er um kvikmynd:

1. vísbending: Myndin fjallar um reiðan ungan mann

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

American History X

Króinn sagði...

Eins og ég er alltaf að segja við þig: Flyttu fyrr! Strax í haust.