18. apr. 2006

Allt í steik

Átti frábæra páska þrátt fyrir: Veikindi, vatnsleysi, brennt páskalamb, hryllileg eymsl í síðu og öxl og pikkfastan bíl. Allt annað var stórkostlegt og þó eingöngu hefði náðst einn dagur fyrir snjóbrettaferð, í stað þriggja eins og ráðgert var, stóð hann fyllega fyrir sínu svo um munaði. Bestu þakkir fær P.Maack. fyrir samveruna.

Í dag get ég varla hreyft mig sökum harðsperra og bólginnar síðu en það er í besta lagi.

S.Ólafsson fær líka bestu þakkir fyrir heimsóknina um daginn. Skál.

2 ummæli:

Pétur Maack sagði...

takk fyrir mig sömuleiðis!

Króinn sagði...

jú, skál á móti góurinn. þetta var indælt, alveg hreint. mycket bra.