Ég boðaði umfjöllun um hegðun hjólreiðafólks í umferðinni.
Eins og lesendur hafa tekið eftir, hef ég nokkuð kvartað yfir slöku aðgengi fyrir hjólandi og bent á leiðir sem bæta mætti til að liðka fyrir reiðhjólaumferð. Það er víða beinlínis hættulegt að vera á hjóli í umferðinni.
En það er ekki bara slæmt aðgengi sem skapar hættur fyri hjólreiðafólk. Oft er það hegðun þess sjálfs sem skapar mestu hættuna. Því miður virðist sem að margt hjólreiðafólkið, annað hvort kann ekki að hjóla, eða virðist einfaldlega ekki þekkja þær (fáu) reglur sem gilda um hjólandi í umferðinni.
Þeim er kannski vorkunn. Umferðarreglurnar eru ekki beinlínis skýrar hvað þetta varðar og eiginlega alveg úr takti við raunveruleikann. T.d. eiga hjólandi að hjóla á götunni en þeira mega líka hjóla á gangstéttinni. Þá ber þeim að hjóla hægra megin og í sömu átt og bílaumferð, en það er þó ekki alltaf skylda.
Það er of algengt að fólk hjóli á gangstétt. Það er mjög víða að pláss á götum er alveg nóg þar sem fólk streitist samt við að hjóla á gangstéttinni. Þá nota fæstir bjöllu til að láta vita þeir að geysast framhjá á hjóli. Það er stórhættuleg hegðun.
Á vefnum hjólreiðar.is er að finna mikið magn gagnlegra upplýsinga um hjólreiðar. Þar má m.a. finna langa og ítarlega grein um rétta hegðun hjólandi í umferðinni. Það er því óþarfi að ég fjalli í löngu máli um það hér heldur vísa ég umrædda grein.
Þá vísa ég í 39. og 40 grein umferðarlaga þar sem fram koma sérreglur um reiðhjól.
Í lokin læt ég mér nægja að nefna nokkur atriði sem ekki virðist vanþörf á að minna á, miðað við það sem ég hef séð af samferðafólki mínu í umferðinni:
1. Hjólaðu á götunni og haltu þig eins langt til hægri og þú getur. Ef umferð bíla er of hröð eða þung máttu hjóla á gangstéttinni, en þá verðurðu að taka tillit til gangandi vegfarenda, sem hafa forgang. Þú átt að víkja fyrir þeim, ekki öfugt!
2. Notaðu ljós, að framan og aftan.
3. Notaðu bjöllu. Það er ekki dónaskapur heldur sjálfsögð kurteisi.
4. Gefðu merki þegar þú beygir, með því að rétta út arminn í þá átt sem þú ætlar.
5. Á sumum gangstéttum má ekki hjóla og þá er það merkt sérstaklega. T.d. má ekki hjóla á gagnstéttinni við Laugaveg og Bankastræti, milli Hlemms og Læjargötu, hvorki upp né niður.
Annars vísa ég aftur í greinina á hjólreiðar.is
Góðar stundir
Sýnir færslur með efnisorðinu reykjavík. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu reykjavík. Sýna allar færslur
9. okt. 2012
7. okt. 2012
Feðgar á ferð II
Við feðgar fórum á labb eins og oft áður og ég vopnaður myndavélinni. Í þetta sinn lá leiðin vestureftir, úr Síðumúla og niður í bæ. Leiðin var reyndar í flesta staði hin ágætasta til göngu. Breiðir og góðir stígar á milli húsa og yfir tún. Aðgengi fyrir kerruna yfirleitt gott, engir götukantar að þvælast fyrir okkur eða ljósastaurar á miðri gangstétt.
Þó voru nokkrir punktar sem vert er að minnast á:
Gatnamót Miklubrautar og Lönguhlíðar
Þessi gatnamót eru galin! Það er svo sem altalað. Þarna er troðið fimm akreinum á milli húsanna og svo gangstétt nánast oní götunni. Með aukinni hjólamenningu er svo orðin töluverð hjólaumferð þarna, sér í lagi meðfram Miklubrautinni. Þarna er hins vegar engin merkt hjólaleið (hún er hins vegar á Lönguhlíðinni, efni í annan pistil), svo tæknilega ætti hjólreiðafólk að hjóla á götunni. En það gerir nú enginn heilvita maður, enda lífshættulegt. Svo allir hjóla á gangstéttinni. Sú umferð fer nær öll norðanmegin, þó að mun meira pláss sé sunnanmegin. En þar er enginn almennilegur hjólastígur, heldur bílastæði og háir götukantar. Kannski helgast þetta líka af því að þessi umferð hjólandi kemur vestanúr eftir Gömlu Hringbraut, þar sem henni er beint undir Snorrabraut og meðfram Klambratúni (hugmyndin var held ég að beina henni undir Bústaðaveginn og suðurmeð Miklubraut, en þá þarf að taka á sig hressilegan krók, sem fæstir gera).
Jæja, þá er ég búinn að útskýra og afsaka umferð hjólandi þarna. Þá get ég birt hina myndina:
Þetta er sum sé tekið í vestur á gagnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar. Hér hef ég hjólað sjálfur, bæði til austurs og vesturs. Um daginn var ég að hjóla úr vinnunni og mætti einmitt öðrum hjólandi, akkúrat þar sem þessi á myndinni er. Þar lá við slysi. Hvorugur okkar var á miklli ferð, engu að síður þurftum við að sveigja hart hvor hjá öðrum til að rekast ekki á og þá munaði litlu að hinn aðilinn stýrði beint út á götu.
Það blasir auðvitað við að þetta horn hentar enganveginn til hjólreiða. Þrátt fyrir það er umferð hjólandi hér heilmikil allan daginn, eins og ég útskýri hér að ofan. Þetta verður að laga. Auðvitað ætti bílaumferðin að fara niður í stokk hér, sem ég held reyndar að sé áætlað. En það er langt þart til slíkar framkvæmdir hefjast og áður en það er gert þarf að laga þetta horn. Þetta er ekki bara hættulegt vegna hjólandi umferðar. Gangandi vegfarendur eru hér í hættu.
Best væri auðvitað að almennileg hjólabraut yrði útbúin, helst sunnanmegin við Miklubrautina. En í millitíðinni ætti a.m.k. að koma einhverju grindverki fyrir til að verja gangandi vegfarendur, og svo einhverri hraðahindrun til að hægja á umferð hjólandi. Þetta þarf ekki að að vera flókið eða kosta mikið.
Rauðarárstígur - Miklabrauð
Þegar áfram er haldið í vestur kemur maður fljótlega að horni Rauðarárstígs og Miklubrautar. Þar er ekki mikið pláss heldur en þar er þó smá grindverk eða múr sem aðskilur betur gangandi og akandi. En hér er sömuleiðis hætta á ferðum sökum blandaðrar umferðar hjólandi og gangandi. Hér er aðgerða þörf. Aftur væri besta lausnin að almennileg hjólaleið væri sunnanmegin og hér væri aðeins umferð gangandi. Þá þyrfti ekki að gera mikið hér til að bæta aðgengi.
Að öllu þessu sögðu er kannski rétt að fjalla um hegðun hjólreiðafólks í umferðinni og þær reglur sem um það gilda. Efni í næsta pistil!

25. sep. 2012
Af klaufalegu skipulagi
Hún fékk heldur betur ágætis athygli, bloggfærslan mín um Amtmannsstíginn. Ég tvíeflist við þetta og held bara áfram að benda á það sem betur mætti fara í borginni. Það eru þessi litlu atriði, sem skipta máli í stóra samhenginu. Áður en ég bendi á næsta atriði má ég til með að nefna að það er margt spennandi á döfinni í skipulagsmálum borgarinnar og spennandi verkefni sem eru þegar í gangi. Þar má nefna hjólabrautina miklu sem leggja á frá Hlemmi og austur að Elliðaárósum. Ég gekk yfir hluta framkvæmdasvæðisins í Laugardalnum í dag og tók mynd:
og geta því hjólandi og gangandi sneitt framhjá staurnum án stórkostlegra vandræða. En þar komum við að enn einu atriðinu, sem þarf að laga mjög víða í borginni: Brautin liggur í gegnum strætóstoppistöð. Það eitt er frekar óheppilegt, því til að stíga út úr skýlinu og inn í strætó þurfa farþegar fyrst að fara yfir hjólabrautina. Þar er slysahætta. (Þetta veit ég að er eitt af þeim atriðum sem lagað verður á áðurnefndri braut frá Hlemmi.) Þetta tilfelli við stoppistöðina BSÍ er því marföld slysagildra. Hér fara saman hjólabraut og göngustígur (einn mínus) sem liggja í gegnum strætóstoppistöð (annar mínus) með ljósastaur á miðri brautinni (þriðji mínusinn). Á pappírum kann þetta að hljóma hagkvæmt. Að nýta malbik, steypu, lýsingu og pláss eins og kostur er. En í framkvæmd er þetta galið. Flytja þarf brautina afturfyrir skýlið og sveigja framhjá staurnum, án þess að sú sveigja verði of kröpp og svo aðskilja betur umferð gangandi og hjólandi.
Laga, takk!
Bætt við kl 22:58
Eftir að hafa skoðað umræddan stíg betur komst ég að því að það er nú ekki alveg á tæru hvort hann sé skilgreindur sem hjólabraut eða ekki. Það eru a.m.k. ekki nein skilti sem gefa það til kynna. Hins vegar er leiðin sjálf, þ.e. Gamla Hringbraut, skilgreind sem hjólaleið skv. korti um hjólaleiðir í Reykjavík. Þar er hins vegar ekki alveg ljóst hvort það sé gatan sjálf eða stígurinn sem eru ætluðu ndir hjólreiðar. Umferðarlögin eru ekkert sérlega skýr hvað þetta varðar. Hjólreiðafólk á að hjóla hægramegin á götu en má hjóla á gangstétt eða gangstíg, fylgi því ekki hætta fyrir gangandi vegfarendur. Ég get ekki fundið neitt þar sem fjallar um merktar hjólabrautir. Ákvæði um hjólreiðar í umferðarlögum er reyndar efni í annan pistil. Svo virðist sem fæst hjólreiðafólk þekki umferðarreglunar hvað þetta varðar. Það fer a.m.k. ekki eftir þeim.
Hér má sjá hvernig hjólastígurinn verður breikkaður þannig að umferð gangandi og hjólandi verður betur aðskilin. Það er mikilvægt öryggisatriði, eigi hjólið að verða að alvöru samgöngutæki, því hröð umferð hjólandi og hæg umferð gangandi fer enganveginn saman. Bravó fyrir þessu og ég hlakka til að nýta mér þessa leið þegar hún verður fullkláruð. Þetta er einmitt önnur af þeim leiðum sem ég get valið til og frá vinnu.
Hin leiðin er meðfram Hringbraut og Miklubraut, en þá leið þarf að stórbæta til að bæta öryggi.
Þessi mynd er tekin á Gömlu Hringbraut, við strætóstoppistöðina BSÍ. Hér birtast nokkur dæmi um það sem laga þarf víða á hjólabrautum borgarinnar, og sem einmitt er verið að taka í gegn á áðurnefndri leið frá Hlemmi og austureftir.
Hér sést dæmi um það þegar göngustígur og hjólabraut fara saman án nokkurrar aðgreiningar. Það er, sem fyrr segir, óæskilegt og af því stafar slysahætta. En það er ekki nóg með það. Eins og sést er ljósastaur á miðri brautinni! Það er ekki aðeins afar undarlegt, heldur stórhættulegt. Reyndar er í þessu tilfelli strætóstoppistöð þarna við hliðina með óvenjustórum „brautarpalli“og geta því hjólandi og gangandi sneitt framhjá staurnum án stórkostlegra vandræða. En þar komum við að enn einu atriðinu, sem þarf að laga mjög víða í borginni: Brautin liggur í gegnum strætóstoppistöð. Það eitt er frekar óheppilegt, því til að stíga út úr skýlinu og inn í strætó þurfa farþegar fyrst að fara yfir hjólabrautina. Þar er slysahætta. (Þetta veit ég að er eitt af þeim atriðum sem lagað verður á áðurnefndri braut frá Hlemmi.) Þetta tilfelli við stoppistöðina BSÍ er því marföld slysagildra. Hér fara saman hjólabraut og göngustígur (einn mínus) sem liggja í gegnum strætóstoppistöð (annar mínus) með ljósastaur á miðri brautinni (þriðji mínusinn). Á pappírum kann þetta að hljóma hagkvæmt. Að nýta malbik, steypu, lýsingu og pláss eins og kostur er. En í framkvæmd er þetta galið. Flytja þarf brautina afturfyrir skýlið og sveigja framhjá staurnum, án þess að sú sveigja verði of kröpp og svo aðskilja betur umferð gangandi og hjólandi.
Laga, takk!
Bætt við kl 22:58
Eftir að hafa skoðað umræddan stíg betur komst ég að því að það er nú ekki alveg á tæru hvort hann sé skilgreindur sem hjólabraut eða ekki. Það eru a.m.k. ekki nein skilti sem gefa það til kynna. Hins vegar er leiðin sjálf, þ.e. Gamla Hringbraut, skilgreind sem hjólaleið skv. korti um hjólaleiðir í Reykjavík. Þar er hins vegar ekki alveg ljóst hvort það sé gatan sjálf eða stígurinn sem eru ætluðu ndir hjólreiðar. Umferðarlögin eru ekkert sérlega skýr hvað þetta varðar. Hjólreiðafólk á að hjóla hægramegin á götu en má hjóla á gangstétt eða gangstíg, fylgi því ekki hætta fyrir gangandi vegfarendur. Ég get ekki fundið neitt þar sem fjallar um merktar hjólabrautir. Ákvæði um hjólreiðar í umferðarlögum er reyndar efni í annan pistil. Svo virðist sem fæst hjólreiðafólk þekki umferðarreglunar hvað þetta varðar. Það fer a.m.k. ekki eftir þeim.
Amtmannsstígur
Göturnar í miðbænum eru margar hverjar gamlar og rótgrónar. Þær eru oft þröngar sem helgast af því að fólk þurfti jafnan minna pláss í gamladaga en það þarf í dag. Göturnar í Þingholtinu eru t.d. þannig. Þær voru ekki troðnar fyrir bíla í upphafi, heldur bara gangandi fólk og hesta, jafnvel annan búfénað. Það er því undarlegt að sjá hvernig þessar götur hafa með tíð og tíma þurft að laga sig að bílaumferð. Nú er málum háttað þannig og hefur reyndar verið um nokkurt skeið, að skipulag þessara gatna virðist algjörlega miðað að bílum. Eina götu geng ég oft í viku. Hinn gamla Amtmannsstíg. Götu sem er svo gömul, að heitið á henni vísar til stöðuheitis sem er ekki lengur til og fæstir vita í raun hvað stendur fyrir. En það er önnur saga. Amtmannstígur er ein af þessum fallegu götum sem hefur þurft að laga mynd sína að þörfum bílsins. Það hefur haft nokkur áhrif á aðgengi fótgangandi í götunni. Ég tók nokkrar myndir af göngu minni með son minn þar í dag. Sjón er sögu ríkari:
Ojæja, höldum göngunni áfram:
Hér hef ég rétt gengið yfir Skólastræti á leið minni upp holtið. Hér fær gatan enn að éta upp gangstéttarplássið. Tröppur að húsadyrum þrengja svo að gangandi umferð nær húsunum og þegar ofar dregur er búið að koma fyrir járngrindum, sem væntanlega eiga að verja gangandi vegfarendur og hús fyrir bílaumferðinni, en gera það að verkum að ekki er hægt að koma t.d. barnavagni með góðu móti eftir gangstéttinni:
Hér erum við feðgar bara komnir í heilmikil vandræði. Hér er ekkert pláss fyrir barnavagninn. Hvernig myndi t.d. blindum eða fólki í hjólastólum ganga að komast leiðar sinnar hér? Slíkir vegfarendur eiga kannski bara að vera annars staðar.
Hér kaus ég að flytja mig yfir götuna og á gangstéttina hinum megin þar sem plássið var ögn meira. En svo var ekki lengi:
Fljótlega kem ég að horni Amtmannsstígs og Þingholtsstrætis og þar virðist einfaldlega ekki ætlast til þess að fólk sé á gangi yfir höfuð. Gangstéttin hreinlega hverfur undir malbik bílanna. Hér neyðist ég að ganga með barnavagninn á götunni og ekki dugir að flytja mig yfir götuna því plássið er varla meira þeim megin þegar ofar er komið.
Nú spyr ég. Þarf gatan að vera svona? Þarf gatan að vera tvístefnugata? Er þörf á öllu þessu plássi fyrir bílaumferðina? Hún er varla mikil eða svo hröð að ekki megi þrengja að henni. Hámarkshraði í götunni er 30 km/klst. Þarf yfir höfuð að aðskilja umferð gangandi og akandi með svona skýrum hætti? Mætti ekki gera Amtmannsstíg að vistgötu þar sem öllum samgöngumátum væri jafnhátt undir höfði gert? Maður gæti svo sem gengið bara á götunni þarna, en þá er maður eiginlega samt bara fyrir. Bílstjórar eru þarna ekki beinlínis hvattir til að taka tillit til gangandi. Gatan er skilgreind sem umferðargata þar sem gangandi vegfarendur eiga að halda sig á gangstéttinni, þó það fari nú lítið fyrir henni.
Mætti ekki breyta þessu? Fara t.d. þá leið sem farin var í Grjótaþorpinu. Þar má keyra bíla um þröngar götur, án þessa að það sé á kostnað umferðar gangandi. Eiginlega bara mjög vel heppnað:
![]() |
Úr Gjótaþorpi, vísað er í myndina á vefnum Virtual Tourist. |
Þess má geta að ég færði inn tillögu á vefinn betrireykjavik.is um að gera Amtmannsstíg að vistgötu. Áhugasamir mega veita henni atkvæði sitt.
27. okt. 2011
betrireykjavik.is
Fyrir nokkrum dögum var hleypt á netið nýrri og bættri útgáfu af Betri Reykjavík. Þetta er hugmyndavettvangur til að bæta borgina okkar og mun, ef staðið verður við stóru orðin, geta haft áhrif á ákvarðanatöku í borginni. Vefurinn snýst um að fólk kemur með hugmyndir og sem svo er hægt að ræða og gefa atkvæði sitt. Í lok hvers mánaðar verður fimm vinsælustu hugmyndum gefið pláss á viðkomandi vettvangi innan borgarkerfisins. Þannig geta notendur vefsins haft bein áhrif á dagsskrá nefnda og sviða. Þetta er frábært framtak.
Ég er sérlega áhugasamur um að gera Reykjavík að betri borg og hef talsvert beitt mér þarna inni og var um langan tíma tillaga mín um að fjölga sölustöðum strætómiða í fimmta sæti. Sem þýðir að hún yrði send til umfjöllunar, væntanlega í stjórn Strætó.
Mér sýnist hún vera að lúta í lægra haldi fyrir hugmynd um að strætó gangi fram yfir miðnætti alla daga, sem er svo sem ekki síðri hugmynd. En mikið væri nú gaman að sjá hugmyndina mann tekna til umfjöllunar.
Hér má sjá fimm efstu hugmyndirnar þessa stundina:

30. júl. 2008
Vitleysisgangur
Hann er nú meiri sauðurinn þessi borgarstjóri í Reykjavík.
Annars er ég á báðum áttum í stóra listaháskólamálinu. Ég á erfitt með að sjá hvernig hægt er að byggja listaháskólahús sem myndi almennilega sóma skólanum um leið og haldið er í þessi þrjú hús þarna á reitnum. Er slík samsuða ekki dæmd til að verða að einhverju moðverki sem yrði sérdeilis engin bæjarprýði? Ég hef amk ekki hugmyndaflug í slíkt ævintýri. Ef það er ætlun manna að halda í öll hús sem kalla má "gömul" á Laugaveginum er ég líka hræddur um að það verði bara til að hamla gegn uppbyggingu á götunni. Væri ekki nær að reyna að halda einshverskonar innra samræmi á tilteknum köflum á Laugaveginum frekar enn að hafa bárujárnshús dreifð inn á milli einhverra steinkubba? Pæling. Kaflinn þar sem hús Listaháskólans á að rísa er t.d. umsettur svona kubbahúsum. T.d. herrahúsinu eða hvað það heitir þarna á hinu horninu. Er svo ekki há steinbyggining beint á móti. Væri ekki alveg málið að flytja þessi gömlu hús bara og svo smella listaháskólabyggingu inn á reitinn sem myndi mynda einhverja heild við húsin í kring á flottan og framúrstefnulegan hátt.
Hmmm - annars er ég almennt á því að reykjavík fái að halda í flest af sínum fallegu bárujárnshúsum. Svei mér þá - líka bara að bárujárnsklæða ný hús svona til að halda samræmi.

31. júl. 2007
Brandari
Reykjavík hefur verið útnefnd grænasta borg í heimi.
Ég tek þessari útnefningu með fyrirvara, rétt eins og GMB. Hann virðist alveg hafa skipt um skoðun síðan hann sagði: „Reykvíkingar hafa valið og þeir hafa valið einkabílinn!“ Mikið fagna ég því.
En það er ótalmargt eftir óunnið til að Reykjavík komist nálægt því að eiga svona nafnbót skilið:
Ég fagna grænum skrefum sem stíga á. Hvenær sem það nú verður gert.
En þau skref eiga án efa eftir að einkennast af hálfkæringi og hallærislegum tilraunum. Það virðist nefnilega aldrei vera hægt að gera neitt almennilega.
Af hverju er t.d. ekki fyrir löngu búið að leggja reiðhjólarein á Hverfisgötu og Lækjargötu? Gera kleift að hjóla án vandræða meðfram allri Hringbraut og Miklubraut? Fjölga grenndargámum fyrir endurvinnslu til muna? Bjóða námsmönnum fríar eða a.m.k. sérlega ódýrar ferðir með strætisvögnum?
Svo fáein lítil skref séu nefnd.
Vita borgarbúar yfir höfuð af þessum skrefum sem ætlað er að taka?

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)