10. nóv. 2008

Föstudagsgetraun 4/5

Engin rétt svör hafa borist. Næst síðasta vísbending:

1. Spurt er um Íslending, nánar tiltekið frá Ísafirði
2. Hann hefur töluvert fengist við tónlist, þó það hafi ekki verið hans aðalstarfi.
3. Hann hefur spilað með mörgum hljómsveitum. Tvær þeirra eru þó þekktari og vinsælli en flestar hinna. Með annarri þeirra söng hann lag sem náði gríðarlegum vinsældum á sínum tíma. Söngur er þó ekki hans aðalhlutverk í hljómsveitunum.
4. Hann er trommuleikari

2 ummæli:

Unknown sagði...

Er þetta læknirinn þarna, hann Lýður?

Finnur sagði...

Trommarinn í Reikjavík! er frá Ísafirði