Hér verður ekki um annað rætt en veður. Vorið er ekki upp á marga fiska. Kaldur vindur. Reykjavíkurveður.
En það kemur í næstu viku. Þá er von á hita. Ég hlakka til.
Hér verður ekki um annað rætt en veður. Vorið er ekki upp á marga fiska. Kaldur vindur. Reykjavíkurveður.
En það kemur í næstu viku. Þá er von á hita. Ég hlakka til.
Americano uppgötvaði ég á Vegamótum árið 2000. Þegar ég var orðinn leiður á að klára úr espresso bollanum löngu á undan lattelepjandi sessunautum mínum. Hér á Biscotti fæ ég úrvals americano. Sælt er lífið.
Sótti mér app í símann minn. Svona hljóðbókardæmi. Stofnaði aðgang að audible.com. Eitthvað amazon.com tengt. Nú get ég sótt mér bækur og hlustað í símanum. Það er bara nokkuð ljúft. Nú þarf ég aldrei að lesa bókstaf aftur.
Fórum bara á laugardagsflipp. Flóamarkaður, róló og kaffihús. Lífið gengur stundum upp. Rauðvín í kvöld. En fyrst hlaupa.
Það var kannski vorstemmari í loftinu um daginn. En veturinn er ekkert farinn. Enda á ekki að fara að vora fyrr en eftir um mánuð. Ég held ef smellt er á orðið "vor" í efnisorðalistanum megi finna samantekt á vorkomu liðinna ára. Hvað um það, hugurinn er á Ítalíu. Þangað var bókuð ferð í gær. Ólívur og vín!
Það er ekki beinlínis hlýtt úti, en sólin skín og það er einhver vorstemming í loftinu. Ætli það séu þó ekki tveir mánuðir í almennilegt vor hér. Þá sest maður nú væntanlega úti við biscotti og fær sér sinn dúbbel ameríkanó. Því varla fer maður að bregða út af vananum, þótt sól hækki á lofti.
Þetta er orðinn huggulegur vani. Dúbbel ameríkanó á biscotti. Í þetta sinn er helgarútgáfa Financial Times með í för. Maður er jú að stefna í að verða kapítalisti. Seisei já.
Við Jóka sátum fyrirlestrardag í gær, Starta företag-daginn. Þar koma fulltrúar frá skattstjóranum, tryggingastofnun, fyrirtækjaskrá og tollinum og kynna manni ferlið við að stofna og reka fyrirtæki. Alveg hreint brilliant fyrirlestrar og heilmikið á þessu að græða.
Þetta er enn eitt dæmið um þennan bómullarhnoðra sem sænska kerfið hefur mann vafið inn í. Það er eiginlega sama hvað maður tekur sér fyrir hendur, alltaf fær maður þá tilfinningu að yfirvöld haldi tryggilega í höndina á manni alveg frá byrjun.
Þegar við áttum von á Nóa var það foreldragrúbban, kynningarfundur um fæðingarorlof og kynning á fæðingardeildinni. Alltaf er gengið úr skugga um að maður sé með á nótunum og fólkið þreytist ekki á að minna mann á að það sé að vinna fyrir okkur og við eigum að vera í bandi ef eitthvað er.
Kannski er þetta sama heima á Íslandi. En samt hef ég meira á tilfinningunni að viðhorf yfirvalda sé meira svona: Þú sèrð um þetta sjálfur og ef það klúðrast, þá reddum við þessu einhvernveginn.
Hér við hliðina á skrifstofunni er kaffihúsið Biscotti. Það er gott að setjast niður fyrir vinnu og byrja daginn á einum dubbel americano.
Þetta er svona eitthvað súper trendí ekó kaffihús. Ágætt að sitja hér og sækja næringu í hlénu á Starta företag-dagen!
Þetta er bjartsýni. En einu sinni notaði ég þetta blogg sem svona opna dagbók. Ég ætla að sjá hvað ég endist til að henda hingað inn hugrenningum mínum um tilveruna.
Það eru svona ákveðin tímamót núna þegar Nói er byrjaður á leikskóla og rútína komin í gang.
Sjáum til
![]() |
| Mynd 1. Evrópu, sem öðrum heimsálfum, er mest megnis stjórnað af miðaldra karlmönnum. Tengt er í myndina hjá Evrópuvefnum, europe.eu |
![]() |
| Mynd 2 af fyrstu ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Takið eftir Þorsteini Pálssyni fremstum hægra megin. Þá 44 ára gamall. Er hann þarna miðaldra karlmaður? Tengt í mynd af vef stjórnarráðsins. |
Middle age is the period of age beyond young adulthood but before the onset of old age.Sum sé tímabilið á milli ungra fullorðinsára og elli. Og Wikipedia heldur svo áfram og fjallar um að lengi vel hafi fólk deilt um hvenær þetta æviskeið stendur yfir en nefnir þó sérstaklega þriðja fjórðung meðalævi manns. Sum sé að miðaldur byrjar þegar meðalævin er hálfnuð og heldur áfram út þann fjórðung. Nú seisei, það ætti ekki að vera erfitt að reikna það út. Það er reyndar ekki alveg svo einfalt að finna tölur um meðalævilengd á Íslandi. En samkvæmt tölum hagstofu er meðalaldur íslenskra karla 36,5 ár. Meðal ævilíkur 37 ára karla er 81 ár. Notum það sem meðalævilengd íslenskra karla. Þá er þriðji fjórðungur meðalævi karla, sum sé miðaldur, á milli fertugs og sextugs. Það er, samkvæmt Wikipedia.
Nefndin setti sér viðmiðunaraldur 50–65 ára sem hún skilgreindi sem miðaldra og eldraHér má því gera ráð fyrir að lægri talan eigi við miðaldra en hærri talan við eldri. En hvar liggja mörkin þar á milli? Það var ekki sagt, en ef við segjum við miðju þá er miðaldur skv. þessu 50-57,5 ára. Hér er líka gert ráð fyrir að fyrst verði maður miðaldra og svo eldri. Inngönguréttur í félaga eldri borgara er við sextugt. Svo kannski er rétt að gera ráð fyrir að miðaldur sé á milli fimmtugs og sextugs. Segjum það.
fólk. Skilgreining Evrópusambandsins á eldra fólki er frá 55 ára aldri en nefndin var
sammála um að 50 ára fólk á Íslandi er álitið miðaldra [...] (bls. 6)