Síður

3. jan. 2008

Sumt skil ég ekki

Ég þykist ekki vera alvitur og það er ótalmargt sem ég ekki skil. Ég skil t.d. ekki fólk kaupir sér flug frá Íslandi og miða á tónleika Íslendinga í Kaupmannahöfn. Varla er málið að það hafi verið ómögulegt að sjá Stuðmenn, Sálina eða Bó á tónleikum á Íslandi. Væri ekki nær að nota tækifærið í Köben og sjá aðra listamenn sem koma aldrei eða sjaldan til Íslands?

Skil ekki


BTW: Gleiðilegt ár - já og gleðileg jól - þau eru enn

1 ummæli:

  1. Já, rétt er það: verulega absúrd er það. Ætli Danir myndu hópast til Íslands til að sjá Kim Larsen?

    Sem sannur Íslendingur hefur þú þá væntanlega verið á Skítamóralstónleikum eða á góðu giggi með Stjórninni þarna í París, er það ekki?

    SvaraEyða