Eftir langa og erfiða fæðing spratt fram alsköpuð hugmynd, blaut og köld. Búferlaflutningar hefjast 29. desember. Þá verður flutt til Gautaborgar með viðkomu í Lundúnabæ. Fagnað verður áramótum þar. Hvernig sem farið verður að því. Mér líst svo sem vel á brú á miðnætti. Í fyrra var það á þaki í Berlín, þar áður í lyftu í Amsterdam. Brú í London er alveg í takt við það.
En sum sé... á nýju ári verður heimili mitt hér!
Húrra, húrra, húrra, húrra!!! Gott að fá þig til Skandinavíu, kallinn minn. Þá vantar bara einn Kolbeinsmeðlim til þess að fullkomna landflóttann.
SvaraEyðaEn verður þá ekkert af Köben-viðkomu nú í kringum jólin?