Ég held áfram áróðri mínum um gildi strætisvagna: Ég ætti að fara að biðjá Strætó bs um péning fyrir þetta. amk fríar ferðir með þeim.
Ég get vel trúað því að margar af merkustu hugmyndum samtímans hafi fæðst í strætisvögnum. Það er ein af fáum aðstæðum þar sem maður fær algjört tóm til að hugsa. Til dæmis uppgötvaði ég í gær í strætó að sundlaug og gusuland eru anagröm. Merkilegt. Finnst mér. Lundsuga er reyndar af sama toga...
Mér finnst fólkið sem finnur strætó allt til foráttu oft gleyma þessu.
SvaraEyðaÞó að maður sé stundum 20 mínútur á leiðinni með strætó á meðan einkabíllinn er 15 þá nýtist tíminn betur á meðan maður er ekki stressaður undir stýri.