Sturtuferð lokið og ég sit í stólnum græna með lappann í kjöltunni eins og vera ber. Kaffi komið í bollann, þetta líka fína sænska kaffi sem við Jóhanna sæta sænska keyptum í IKEA.
Ég vek athygli á SUDOKU grein Margrétar á Sellunni. Það er smá SUDOKU æði í gangi hjá hjónaleysunum á Czaar Peterstraat - enda bjargaði spilið hinni flughræddu Jóhönnu í þrígang hér á ferðalagi okkar um daginn, auk þess að stytta okkur stundir í fjögurra tíma rútuferðalagi frá Köben til Göten.
SUDOKU rokkar
Kaffið drekk ég með bestu lyst og nú er tími til kominn að tengja
gott að vita að þú ert samt ekki hættur að þrífa þig þó að þú hangir yfir sudoku
SvaraEyðausss. ég datt inn í þennan fjanda og hef ekkert getað unnið!
SvaraEyðaég tek nokkur með mér heim