S-einn stóð undir nafni í dag eins og flesta aðra daga. Mér finnst ágætt að ferðast með strætó. Næ yfirleitt að lesa mestmegnis Fréttablaðið á leiðinni. En mér finnst ekki gaman að bíða eftir strætó. Mér finnst ekki gaman að bíða yfir höfuð. Þoli það ekki.
Nei, myndin hér að neðan er hvorki úr For a Few Dollars More né The Good, the Bad and the Ugly hans Leones míns.
Er þetta úr sígarettuauglýsingu?
SvaraEyðaMig minnir reyndar að ein myndin hafi heitað Fistful of dollars. Kannski er þetta hún. Ekki það að ég horfi á bíómyndir að ráði svona ef mig skyldi kalla.
SvaraEyðaskrýtið ... er þetta ekki sama ponsjóið og hann er í í for a few dollars more?
SvaraEyðaÉg held að hann hafi nú klæðst þessu ponsjói í öllum systramyndunum þremur. Hinsvegar er þetta skot úr A Fistful of Dollars.
SvaraEyða